Færsluflokkur: Tónlist
Lög ungra verðbréfagutta
22.6.2009 | 00:27
Í gamla daga þegar að allir hlustuðu á gufuna voru óskalagaþættir afar vinsælir. Óskalög sjúklinga, Óskalög sjómanna og Lög unga fólksins voru þeir þættir sem ég man eftir. Sjálfur hlustaði ég mest á lög unga fólksins, var nánast límdur við útvarpstækið, með fingurinn á Rec takkanum, til að taka upp nýjustu smellina (það var fúlt þegar að þulir töluðu í byrjun og enda laga). Mikil áhersla var lögð á hvaða lag væri mest umbeðið, enda rataði það h.u.b. alltaf á TDK spólu manns.
Væri útvarpið með svipuðu sniði í dag væri sjálfsagt þáttur í gangi sem héti Lög ungra verðbréfagutta. Hef ég valið 15 lög sem væru líkleg til vinsælda (eða ekki!) í slíkum þætti. Nú spyr ég með nýrri skoðanakönnun (sjá hægra megin á síðunni), hvaða lag finnst þér eigi best heima í slíkum þætti?
Wall Street Shuffle - 10CC
You Never Give Me Your Money - The Beatles
Money, Money, Money - ABBA
Sirkús Geira Smart - Spilverk Þjóðanna
Jakkalakkar - Bubbi (1992)
Money (That´s What I Want) - Barrett Strong
Opportunities (Let´s Make Lots of Money) - Pet Shop Boys
Hvað kostar hamingjan? - Ný Dönsk
Material Girl - Madonna
Lovely Money - The Damned
Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn - Gilligill
Mutter, der Mann mit dem Koks ist da (Ich hab' kein Geld und du hast kein Geld) - Falco
Money - Pink Floyd
(You Gotta Lot of Money But You Can't Afford the) Freeway - Aimee Mann
Temptation - Heaven 17
Sjálfur valdi ég Falco lagið Mutter der Mann mit dem Koks ist da en ég átti erfitt að velja á milli þess og bítlalagsins. You Never Give Me Your Moneyá grátlega vel við ástandið í dag en Falco myndbandið (sjá hér) er einnig lýsandi fyrir því hvernig farið hefur verið með landi og þjóð (þetta er hugsanlega langsótt hjá mér).
Þessi lög heltust úr lestinni á síðustu stundu, á að bæta þeim við?
Silver & Gold - U2
Það koma vonandi jól - Baggalútur
The Pound is Sinking - Paul McCartney
I Found a Million Dollar Baby - Bing Crosby
Stand & Deliver (Money or Your Life) - Adam & the Ants
Verðbólgin augu - Ný Dönsk
She Works Hard for Her Money - Donna Summer
...og Money Honey - Bay City Rollers
Í athugasemdalista hafa fleiri góðir kandidatar bæst við:
Can´t Buy Me Love - The Beatles
Money, (Makes a Hole in My Pockets) - Dean Martin
Selling England by the Pound - Genesis
Bank Robber - The Clash
Skuldir - Tatarar
Peningar - Hljómar
Diamonds for Breakfast - Amanda Lear
Einnig kom tillaga um útgáfuna á Money (That´s What I Want) með Flying Lizards, sem bítlarnir tóku reyndar líka. Sýnist vera nægt efni í nokkra þætti.
Tónlist | Breytt 23.6.2009 kl. 00:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)